Siðareglur fasteigna, fyrirtækja og skipasala
Kafli 1. Almenn ákvæði
1. gr.
Allir félagsmenn í Félagi fasteignasala (FF) skulu í störfum sínum fara eftir siðareglum FF. Félagsmenn skulu einnig sjá til þess að starfsmenn þeirra fylgi reglunum. Fasteignasali má á engan hátt stuðla að því að aðilar sem hafa ekki löggildingu fái unnið verk sem skulu lögum samkvæmt aðeins unnin af fasteignasala.
2. gr.
Félagsmenn skulu fylgja þeirri grundvallarreglu að stunda fagleg og heiðarleg vinnubrögð, vekja traust og virðingu út á við og leitast við að styrkja samstarf og samstöðu félagsmanna.
3. gr.
Félagsmenn skulu leitast við að auka faglega þekkingu sína. Félagsmönnum ber að fylgjast með þeim lögum, reglugerðum, dómum og úrskurðum stjórnar FF og samþykktum er varða fasteignasölu eða snerta á einhvern hátt fasteignaviðskipti.
4. gr.
Félagsmönnum ber að fara eftir:
a) Lögum og reglugerðum sem gilda um starfsemi fasteignasala.
b) Skráðum og óskráðum reglum um góða fasteignasöluvenju (viðskiptavenju). Stjórn félagsins sker úr um hvað telst góð fasteignasöluvenja. Varði úrskurður stjórnar einstakan ákveðinn fasteignasala getur hann skotið málinu til félagsfundar Félags fasteignasala. Málsskot frestar ekki ákvörðun stjórnar en félagsfundur getur fellt hana úr gildi.
Kafli 2. Samskipti við viðskiptavini.
5. gr.
Félagsmenn skulu ekki taka að sér störf sem brjóta í bága við lög, opinberar reglugerðir, siðareglur þessar eða góða fasteignasöluvenju.
6. gr.
Félagsmönnum ber að vinna þau störf sem þeir taka að sér eftir bestu samvisku og þekkingu á faglegan , vandaðan og ábyrgan hátt.
7. gr.
Félagsmaður skuldbindur sig til, þegar hann tekur að sér starf , að afla sem gleggstra upplýsinga um hvað í því felst. Félagsmenn skulu ávallt veita eins réttar og návæmar upplýsingar um eignir og þeir búa yfir og þeim ber lagaskylda til.
8. gr.
Fasteignasali skal ekki hafa milligöngu um sölu eigin eignar eða maka síns, það sama á við um starfsfólk þeirra. Þá er milliganga um sölu eigna sem eru í eigu félaga sem fasteignasali, starfsmenn eða makar þeirra eiga óheimil, nema hagsmunir séu óverulegir.
9. gr.
Félagsmenn skulu ekki gefa ráð eða veita umsagnir um málefni sem þeir hafa ekki kunnáttu á. Ef félagsmenn búa ekki yfir þekkingu á ákveðnu málefni skulu þeir ekki fjalla um það, heldur vísa viðskiptavinum til sérfræðinga á því sviði.
Félagsmenn skulu tryggja að engir starfsmenn aðrir en þeir sem hafa löggildingu til fasteignasölu komi fram sem sérfræðingar á sviði fasteignaviðskipta né veiti sérfræðiráðgjöf í þeim efnum.
10. gr.
Félagsmenn skulu gæta þess að störf sem þeir taka að sér brjóti ekki í bága við siðareglur þessar. Áður en félagsmenn taka að sér milligöngu um sölu eignar ber þeim að fullvissa sig um að enginn annar félagsmaður hafi eignina til einkasölumeðferðar. Félagsmaður skal ekki , hvorki á beinan né óbeinan hátt, falast eftir milligöngu um sölu eignar sem hann veit eða má vita að hefur verið falin öðrum félagsmanni til einkasölumeðferðar.
11. gr
Markaðsöflun fasteignasala, þar með talið með auglýsingum, skal ekki byggð á röngum, villandi eða ófullnægjandi upplýsingum.
Fasteignasali skal vegna fasteignaauglýsinga koma fram með ábyrgum hætti og fylgja í einu og öllu lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005, einkum 6, 7, 14 og 15 gr. laganna.
Fasteignasali skal gæta þess við öflun verkefna að fara að lögum og siðareglum þessum og gæta að því að hugsanlegir kaupendur eða seljendur verði ekki fyrir óeðlilegum þrýstingi eða óeðlilegri háttsemi fasteignasala við verkefnaöflun.
12. gr.
Auglýsingar skulu vera málefnalegar og efnislega réttar. Í auglýsingum skal birta nafn og titil löggilts fasteignasala með áberandi hætti. Sama gildir um öll skjöl og bréfsefni.
Fasteignasali skal tryggja það að aðrir menn kynni sig ekki sem fasteignasala, né komi fram sem ráðgjafar, sérfræðingar eða sjálfstæðir rekstraraðilar í hans nafni nema þeir séu fasteignasalar.
Í auglýsingum skal þess gætt að almennra starfsmanna á fasteignasölum sé aldrei getið með meira áberandi hætti en fasteignasala, nær þetta til bæði texta og mynda í auglýsingum.
13. gr.
Félagsmanni er óheimilt að veita viðskiptavini lán, gjaldfrest, ábyrgð eða aðrar ívilnanir í þeim tilgangi að fá verkefni.
14. gr.
Félagsmenn og starfsmenn þeirra eru bundnir þagnarskyldu um málefni viðskiptavina sem þeir fá vitneskju um í starfi, s.s. við tilboðsgerð. Þegar starfsemi félagsmanns líkur skal séð til þess að skjöl fyrirtækisins komist ekki í rangar hendur.
Kafli 3. Samskipti milli fasteignasala
15. gr.
Fasteignasalar skulu hafa góða samvinnu sín á milli og sýna hver öðrum fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu.
Þeir skulu sýna hver öðrum þá sanngirni, trúnað og tillitssemi, sem samrýmanleg er hagsmunum stéttarinnar.
16. gr.
Fasteignasali má einungis hafa uppi gagnrýni á störfum annars fasteignasala á málefnalegum grundvelli, og skal forðast að valda honum álitsspjöllum umfram það, sem málefnið gefur ástæðu til.
17. gr.
Ef fasteignasala er falin milliganga um sölu fasteignar , skal hann ekki hefja vinnu fyrr en hann hefur fullvissað sig um að einkasölusamningi fasteignasala hafi verið sagt upp. Óheimilt er fasteignasala að hefja störf fyrir viðkomandi viðskiptamann fyrr en fresti skv. einkasöluumboði er lokið.
18. gr.
Fasteignasali sem leitar aðstoðar eða álits annars fasteignasala um tiltekna þætti verkefnis er hann vinnur að, er persónulega ábyrgur fyrir greiðslu á útlögðum kostnaði og þóknun þess fasteignasala, nema um annað sé samið.
19. gr.
Í innbyrðis deilum ber fasteignasala, sem hyggst kæra annan fasteignasala fyrir yfirvöldum eða dómstólum, að gera honum og stjórn Félags fasteignasala aðvart áður og gefa þeim kost á að tjá sig um málefnið.
Fasteignasali má ekki hóta öðrum fasteignasala kæru eða lögsókn í því skyni að fá hann til að aðhafast eitthvað eða láta eitthvað ógert í máli viðskiptamanns.
Heimilt er þó að víkja frá þessari reglu ef brýna nauðsyn ber til vegna eðlis málsins.
Kafli 4. Önnur ákvæði
20. gr.
Stjórn FF úrskurðar um hvað telst góð fasteignasöluvenja. Stjórnin skal einnig taka afstöðu til kvörtunarmála milli félagsmanna gegn greiðslu á málsskotsgjaldi sem ákveðið er á aðalfundi Félags fasteignasala. Áður en stjórnin kemst að niðurstöðu skal viðkomandi gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri
21. gr.
Stjórn FF tekur afstöðu til kvartana frá viðskiptavinum vegna félagsmanna og vegna ágreinings milli félagsmanna innbyrðis. Stjórnin skal jafnframt setja sérstakar vinnureglur um meðferð slíkra mála, sem bornar skulu undir félagsfund þ.á m. málsskotsgjald. Félagsmenn skulu taka mið af úrskurðum stjórnar varðandi ágreining milli félagsmanna.
22. gr.
Fasteignasali ber persónulega ábyrgð á störfum sínum og starfsmanna sinna.
Við firmanafn fasteignasölu skal ávallt tilgreina fullt nafn og starfstitil þess eða þeirra fasteignasala, sem hana eiga og ábyrgð bera á störfum hennar.
Fasteignasali skal tilkynna stjórn Félags fasteignasala hverjir séu eigendur félags um reksturs skrifstofunnar.
23. gr.
Fasteignasali skal hafa góða skipan á skrifstofu sinni, vaka yfir störfum starfsliðs síns og líta eftir því, að starfsmenn fylgi góðum fasteignasöluháttum.
Ber fasteignasala að sjá til þess, að bókhald skrifstofunnar, varsla fjármuna, skjala og annarra gagna sé í samræmi við lög og góða venju í þeim efnum.
Fasteignasali skal ekki láta óviðkomandi hafa aðgang að skjölum eða öðrum gögnum skrifstofunnar, er varðað geta viðskiptamenn hans.
Kafli 5. Um viðurlög o. fl.
24. gr.
Stjórn félagsins hefur eftirlit með því, að reglum þessum sé fylgt. Hún hefir um það samráð við stjórnvöld og Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala eftir því sem ástæða er til.
Stjórn Félags fasteignasala skal leitast við að leysa úr deilum fasteignasala innbyrðis.
Stjórn Félags fasteignasala sker úr ágreiningi um skilning á reglum þessum.
Fasteignasala er skylt, að boði stjórnarinnar, að gera viðhlítandi grein fyrir máli sínu út af meintu broti eða ágreiningi um skilning á reglum þessum. Ber fasteignasala í því efni að svara og sinna án ástæðulauss dráttar fyrirspurnum og kvaðningum stjórnarinnar.
Stjórn félagsins tekur afstöðu til þess hvort fasteignasali hafi gerst brotlegur við siðareglurnar eða ekki og greinir brot í eftirfarandi flokka eftir eðli þeirra:
a) ámælisvert
b) alvarlegt
c) mjög alvarlegt
Úrskurði stjórnar ásamt rökstuðningi skal birta í heild sinni á heimasíðu félagsins eða í fréttabréfi.
Stjórnin getur þegar um alvarlegt eða mjög alvarlegt brot er að ræða mælt með að hinn brotlegi greiði kostnað vegna málsins.
25. gr.
Framanskráðar reglur má ekki skoða sem tæmandi taldar um góða fasteignasöluhætti.
26. gr.
Siðareglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi Félags fasteignasala.
Þannig samþykkt á framhaldsaðalfundi Félags fasteignasala þann 4. nóvember 2004
Breytingar á aðalfundi Félags fasteignasala þann 25. febrúar 2005
Breytingar á aðalfundi Félags fasteignasala þann 24. febrúar 2006
Breytingar á aðalfundi Félags fasteignasala þann 28. febrúar 2008
Breytingar á aðalfundi Félags fasteuignasala þann 26. febrúar 2009
Breytingar á aðalfundi Félags fatseignasala þann 25. febrúar 2010



