Síðumúla 1 - 108 Reykjavík - S: 588-1640

Prenta síðu

Hafa samband

Fyrirspurnir

Spurningar ásamt svörum


Mikill fjöldi spurninga berst Félagi fasteignasala um fasteignaviðskipti og skyldur fasteignasala. Hér á eftir er nokkurra þeirra helstu sem hafa borist getið

 

Hússjóður?

28.12.2010

Fyrir nokkru keypti ég eign þar sem söluyfirlit var til staðar en ekki var nein yfirlýsing frá húsfélagi um hússjóð eða framkvæmdir. Mér var aftur á móti tjáð hver hússjóðurinn væri og ekkert var fjallað um yfirstandandi framkvæmdir. Nú var að koma í ljós að framkvæmdir höfðu verið ákveðnar á húsfundi nokkru áður en ég keypti og er kostnaður á mína íbúð um kr 500.000.

Forræði seljanda

28.12.2010

Ég átti hæsta boð í eign en mínu boði var ekki tekið er það löglegt og hvaða reglur gilda um hvaða boð í fasteign sé tekið ?

Lægra söluverð?

28.12.2010

Fyrir nokkru keypti ég fasteign en hef nú lent í talsverðum greiðsluerfiðleikum og setti eignina því á sölu. Sá fasteignasali sem kom og mat eignina mat hana á tæpum 25% lægra verði en ég keypti eignina á fyrir nokkrum mánuðum. Sölumaðurinn sem var milligöngumaður fyrir nokkrum mánuðum greindi mér á engan hátt frá að því að ég hafi verið að bjóða í eignina of mikið. Á ég einhvern rétt vegna þessa ?

Flatarmál fasteignar?

28.12.2010

"Ég keypi fyrir nokkru fasteign sem fram kom í söluyfirliti að væri 143 fermetrar. Ég hef nú látið mæla upp íbúðina og er hún einungis 135 fermetrar. Mér finnst ég hafa verið svikinn og greitt of hátt verð fyrir eignina."

Löggildur fasteignasali / fasteignasali

28.12.2010

Hver er munurinn á því að vera löggiltur fasteignasali og fasteignasali

Fagleg ábyrgð

28.12.2010

"Fyrir nokkru seldi ég eign og var óánægð með þá þjónustu sem mér var veitt og rak mig á ýmis mistök sem gerð höfu verið. Ég vildi tala við löggilda fasteignasalann vegna þessa og var mér þá sagt að eigandi fasteignasölunnar sæi um slík mál. Þegar ég leitaði eftir því hvort hann væri löggiltur fasteignasali þá kom í ljós að hann væri það ekki. Hvaða rétt hef ég varðandi slíkt ?"