Stutt yfirlit yfir sögu Félags fasteignasala
Aðdragandi stofnunar Félags fasteignasala var sá að nokkrir fasteignasalar komu saman í apríl 1983 og ræddu stofnun nýs félags. Stofnfundurinn var haldinn þann 5. júlí 1983 og þar ákveðið að félagið héti Félag fasteignasala, þó svo nokkarar umræður hafi orðið um þá nafngift. Í upphafi urðu miklar umræður um tilgang félagsins og lög þess og m.a. raddir þess efnis að félagið ætti að vera opið öllu starfsfólki á fasteignasölum.
Á næstu árum var unnið ötullega að bæta vinnubrögð í fasteignasölu en mikið þótti skorta á að það væri með þeim hætti sem gera mætti kröfu um.
Á árinu 1989 voru samþykktar siðareglur fyrir félagsmenn. Frá þessum tíma hefur mjög margt áunnist innan fasteignasölustéttarinnar. Frá stofnun félagsins hefur félagafjöldi verið nokkuð mismunandi en á árinu 2004 varð lögbundin skylduaðild að Félagi fasteignasala og eru nú allir fasteignasalar í félaginu. Þá lagði stjórn Félags fasteignasala fram á árinu 2005 stefnumótun félagsins til ársins 2008 þannig að félagsmönnum og öðrum væri ljós markmið félagsins og hvernig þeim markmiðum yrði náð.
Formenn Félags fasteignasala
Magnús Axelsson 1984 til 1986
Þórólfur Halldórsson 1986 til 1993
Jón Guðmundsson 1993 til 1999
Guðrún Árnadóttir 1999 til 2003
Björn Þorri Viktorsson 2003 til 2007
Ingibjörg Þórðardóttir 2007 til



