Stjórn félagsins er skipuð 5 fasteignasölum og tveim til vara.
Núverandi stjórn var kjörin á aðalfundi félagsins þann 25. febrúar s.l. 2011.
Tilgangur Félags fasteignasla er margþættur m.a. að gæta hagsmuna fasteignasala,sinna lögboðnu eftirlits- og agavaldi, m.a. í tengslum við Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala,fylgjast með að fasteignasalar fylgi siðareglum félagsins í störfum sínum, stuðla að framþróun fasteignaviðskipta ofl.
Félag fasteignasala er til húsa að Síðumúla 1 í Reykjavík. Sími félagsins er 588-1640.
Framkvæmdastjóri félagsins er Grétar Jónasson hdl en hægt er að óska eftir tíma til viðtals við hann skv. samkomulagi á símatíma félagsins.
Skrifstofan er opin frá mánudegi til föstudags frá kl. 9:00 12:00 og er símatími fyrir neytendur með fyrirspurnir frá kl. 10:00-12:00 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Viðtalstíma við stjórn eða einstaka stjórnarmenn skal ákveða í samráði við
skrifstofu félagsins.
Formaður er kosinn til eins árs í senn en meðstjórnendur eru kosnir til tveggja ára í senn,tveir ár hvert. Í varastjórn eru síðan kjörnir tveir menn til eins árs.
Hlutverk stjórnar er m.a.
a) að veita umsagnir og hafa eftirlit samkvæmt ákvæðum laga um fasteignsala,
b) að tilnefna í ráð og nefndir eftir því sem kveðið er á um í lögum,
c) að koma fram fyrir hönd fasteignsalastéttarinnar,
d) að miðla upplýsingum til fasteignasala og annarra, eftir því sem þörf er á, um það er varðar fasteignasalastéttina og hlutverk og starfsemi stjórnarinnar samkvæmt lögum umfasteignasala, e) að leysa úr ágreiningsmálum milli félagsmanna innbyrðis og gæta þess að fylgt sé góðum fasteignasöluháttum. Brot á siðareglum Félags fasteignasala getur leitt til þess að úrskurður falli um brot félagsmanns sem birt verður á heimasíðu félagsins eða í fréttabréfi.
f) að vinna að hagsmunamálum félagsmanna.
Stjórn félagsins er þannig skipuð:
![]()
Ingibjörg Þórðardóttir
formaður.
Ágústa Hauksdóttir
varaformaður.
Meðstjórnendur:
![]()
Jóhanna Guðmundsdóttir
gjaldkeri.
Einar Páll Kjærnested
![]()
Kjartan Hallgeirsson
Varamenn:
![]()
Sigurbjörn Skarphéðinsson
![]()
Sigrún Stella Einarsdóttir



